Í Írak eru nú um 5.200 bandarískir hermenn sem taka þátt í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við Íslamska ríkið. Í Afganistan eru um 8.600 bandarískir hermenn.
Ekki liggur enn fyrir hversu marga hermenn Trump hyggst kalla heim en í ágúst sagði hann að markmiðið væri að fækka bandarískum hermönnum í Afganistan niður í um 4.000.