Frá því að heimsfaraldur kórónuveirunnar braust út hefur vændi verið ólöglegt í Þýskalandi. Það hefur nú leitt til þess að stærsta vændishús landsins og um leið Evrópu hefur lagt upp laupana. Vændishúsið heitir Pascha og er í Köln. Armin Lobscheid, forstjóri þessa tíu hæða vændishúss, segir að það sé komið að endalokum starfsemi þess.
120 vændiskonur hafa starfað í húsinu auk 60 annarra starfsmanna, þar á meðal kokka og hárgreiðslufólks.
Lobscheid gagnrýnir þýsk yfirvöld fyrir viðbrögðin við heimsfaraldrinum og þá sérstaklega hvað varðar enduropnun vissra atvinnugreina. Hann segir að yfirvöld hafi framlengt lokun vændishúsa aðra hverja viku og því hafi ekki verið hægt að skipuleggja neitt. Hugsanlega hefði verið hægt að komast hjá gjaldþroti með aðstoð banka ef vissa hefði fengist fyrir að opna mætti á nýjan leik í upphafi næsta árs.