CNN skýrir frá þessu.
„Þetta hefur verið langt ferðalag. En því er lokið. Núna er því lokið,“
sagði hann við þá sem biðu hans við fangelsið þegar hann gekk út með eigur sínar.
Hann var með andlitsgrímu sem á stóð „Free Ronnie Long“ (Frelsum Ronnie Long). Hann þakkaði lögmönnum sínum fyrir baráttu þeirra og þrautseigju í þessari löngu baráttu.
Long, sem er orðinn 64 ára, var látinn laus eftir að yfirvöld fóru fram á við alríkisdómstól að það yrði gert.
Stephanei Thacker, dómari, skrifaði í dómsniðurstöðu að síðan Long var sakfelldur hafi eitt og annað komið fram í dagsljósið sem sýni að lögreglan hafi á meðvitaðan hátt leynt mikilvægum sönnunargögnum. Meðal þessara gagna voru sæði og fingraför, sem fundust á vettvangi, en voru ekki úr Long. Þessum gögnum leyndi lögreglan vísvitandi.
CNN hefur eftir Jamie Lau, lagaprófessor við Duke háskólann, að verjendur Long hafi ekki haft aðgang að þessum gögnum á sínum tíma og hafi því ekki getað notað þau í málsvörninni. Hann hafi því setið saklaus í fangelsi í 44 ár. Hann sagði að réttarhöldin hafi því ekki verið sanngjörn en einnig hafi kynþáttahyggja unnið gegn honum.
Long var sakaður um að hafa nauðgað 54 ára hvítri konu í Concord í Norður-Karólínu í apríl 1976. Um tveimur vikur eftir að konan tilkynnti um nauðgunina fengu lögreglumenn hana til að koma í dómshús og fylgjast með fólki sem var að koma fyrir dóm vegna annarra mála. Hún benti á Long sem hafði verið handtekinn, grunaður um að hafa farið ólöglega inn á umráðasvæði óviðkomandi aðila. Þeirri kæru var síðan vísað frá.
Lau sagði að allir í kviðdómnum hafi verið hvítir, öll vitni saksóknara hafi verið hvít og öll vitni Long hafi verið svört. Hann sagði að Long hafi staðið illa að vígi vegna þessa og í ljósi þeirrar kynþáttahyggju sem ríkti í Norður-Karólínu og sérstaklega Concord árið 1976.
Long hefur alla tíð haldi fram sakleysi sínu og barðist fyrir frelsi sínu árum saman. Dómurinn úrskurðaði hann ekki saklausan en vísaði þeim hluta málsins til lægra dómsstigs til meðferðar.
Lau sagði CNN að hann væri ekki í vafa um að Long verði sýknaður því það séu engin sönnunargögn sem sýni að hann beri ábyrgð á þessum glæp.
Sjálfur sagði Long fréttamönnum að hann ætlaði að fá sér góðan mat til að halda upp á frelsið sem hann tók að vonum fagnandi og gladdist yfir að geta hitt ástvini sína. Lau sagði að það skyggði þó á gleðina að móðir Long lifði ekki að sjá hann fagna frelsi en hún lést sex vikum áður en hann var látinn laus. Síðustu orð hennar voru:
„Er Ronnie kominn heim?“