The Sun skýrir frá þessu. Tveimur vikum síðar fannst lík hans í gröf í Graceville í Flórída. Það voru lögregluhundar sem fundu það. Lögreglan telur að hann hafi verið skotinn til bana í kringum 4. júlí.
Rannsóknin beindist fljótlega að fólki sem Guillen hafði nefnt við fyrrum eiginkonu sína, þar á meðal Aubrey Gold, sem heitir réttu nafni Lauren Wambles. Hún var handtekin ásamt 35 og 43 ára karlmönnum. Þau eru grunuð um að hafa myrt Guillen og ósæmilega meðferð á líki hans.
Gold er ekki óþekkt hjá lögreglunni því á síðustu tveimur árum hefur hún verið handtekin sex sinnum fyrir ýmis afbrot. Hún átti einmitt að mæta fljótlega fyrir dóm í tengslum við stórt fíkniefnamál. Lögreglan segir að ástæðan fyrir morðinu á Guillen sé „fíkniefni og peningar“.