Þessu bregst fólk við með því að boða til ólöglegra samkvæma. Víða eru þessi samkvæmi nefnd covid-rave og eru yfirleitt auglýst í lokuðum hópum á samfélagsmiðlum. Ekki er upplýst um staðsetningu fyrr en rétt áður en samkvæmið á að hefjast.
Í París byrjuðu samkvæmi af þessu tagi að skjóta upp kollinum þegar skemmtistöðum var lokað í mars. Samkvæmin eru haldin í almenningsgörðum, í yfirgefnum verksmiðjum og lagerbyggingum. Frönsk yfirvöld leita nú leiða til að leysa málið þannig að þau hafi yfirsýn yfir hvað er að gerast hverju sinni. Þau vilja ekki senda lögregluna til að stöðva þessi samkvæmi heldur finna leiðir til að gera þau lögleg. En enn hefur engin lausn fundist og margoft hefur komið til átaka á milli lögreglu og samkvæmisgesta. Lögreglan hefur stöðvað samkvæmi, með allt að 6.000 gestum, á ströndum landsins.
The Telegraph segir að Lundúnalögreglan hafi stöðvað rúmlega 1.000 ólögleg samkvæmi síðan í lok júní. Ríkisstjórnin hefur nú heimilað lögreglunni að sekta þá sem skipuleggja svona samkvæmi og/eða sækja þau um háar upphæðir. Getur sektin numið allt að 10.000 pundum.