Sky skýrir frá þessu. Bandaríkin hafa verið í efsta sæti hins dapurlega lista yfir flest tilfelli síðustu vikur en Brasilía er í öðru sæti með tæplega 3,9 milljónir staðfestra smita og rúmlega 120.000 dauðsföll.
Sky segir að sérfræðingar í Bandaríkjunum telji að smit þar í landi sé miklu fleiri en þessar tölur segja til um og að allt að 10 manns geti verið smitaðir miðað við hvert staðfest smit. Ástæðan er takmörkuð geta til sýnatöku og rannsókna og fjöldi tilfella þar sem einkennin eru væg og/eða hafa ekki verið staðfest með sýnatöku.
Margir Bandaríkjamenn hafa þverskallast við að nota andlitsgrímur og stunda félagsforðun og er óhætt að segja að það hafi vakið undrun víða um heim hversu illa Bandaríkjamönnum hefur tekist til við að hefta útbreiðslu veirunnar.
Í ræðu, sem Donald Trump flutti á landsþingi Repúblikana á föstudaginn, sagði hann að Bandaríkin væru með ein bestu viðbrögð heims gegn veirunni.
„Bandaríkin eru með einna lægstu dánartíðnina af stórum ríkjum heims. Dánartíðnin í ESB er næstum þrisvar sinnum hærri en hjá okkur. Samanlagt hafa Evrópuríki upplifað 30% meiri aukningu á dánartíðni en Bandaríkin,“
sagði Trump sem hefur átt á brattann að sækja hjá þjóðinni vegna viðbragða hans við faraldrinum.