fbpx
Þriðjudagur 27.ágúst 2024
Pressan

Trump vill senda Biden í lyfjapróf fyrir kappræður þeirra

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 27. ágúst 2020 19:30

Trump og Biden. Mynd/samsett Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við Washington Examiner í gær að hann hafi tekið eftir skyndilegri og talsverðri bætingu í framkomu Joe Bidens, keppinautar síns úr Demókrataflokknum, í kappræðum hans við Bernie Sanders í mars. Trump gaf það í skyn að þessi ætlaða stórbætta frammistaða Bidens væri af völdum lyfja. Fyrir því flutti Trump þó engar sannanir.

Biden tók á sínum tíma þátt í ellefu kappræðum í forkosningum Demókrata. Aðeins ein þeirra var gegn Bernie Sanders einum.

„Enginn hélt að hann myndi vinna,“ sagði Trump, „vegna þess hve illa hann stóð sig. Í hreinskilni sagt, þá var besta frammistaða hans gegn Bernie. Við ætlum að biðja um lyfjapróf, af því að besta frammistaða hans var gegn Bernie. Það var ekki svo að hann væri Winston Churchill, af því hann var það ekki, heldur var þetta bara venjulegar, hundleiðinlegar kappræður. Þú veist, ekkert stórkostlegt gerðist. Við ætlum að kalla eftir lyfjaprófi vegna þess að það er engin leið – þú getur ekki gert það.“

„Ég vissi ekki hvernig hann gat verið svo vanhæfur í kappræðum og svo skyndilega var framkoma hans í allt í lagi á móti Bernie. Punkturinn minn er þessi, ef þú horfir á þessar kappræður allar, þá var hann svo lélegur. Það var ekki einu sinni samhengi í því sem hann sagði. Þegar kom svo að Bernie, var hann í lagi. Við ætlum að kalla eftir lyfjaprófi,“ sagði Trump. Forsetinn sagðist vera að styðjast við eigin athuganir, en að hann væri „nokkuð flinkur í þessu dóti.“

Trump og Biden munu etja kappi í fyrstu kappræðum forsetakosningabaráttunnar þann 29. sept. Forsetinn gat ekki tjáð sig um það hvenær og hvert hann myndi beina formlegri ósk um lyfjapróf.

Kosningateymi Bidens vildi ekki tjá sig um málið við fjölmiðla þegar bandaríski stjórnmálavefurinn The Hill leitaði eftir því.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar