Samkvæmt tölum WHO þá fer smitum og dauðsföllum sérstaklega fækkandi í ríkjum, sem hafa orðið illa úti, í Norður-, Mið- og Suður-Ameríku og Afríku.
Í suðaustur Asíu, við austanvert Miðjarðarhafið og hlutum Evrópu er þróunin hins vegar ekki í rétta átt.
Í síðasta vikuuppgjöri WHO kemur fram að 1,7 milljónir nýrra smita hafi greinst og um 39.000 hafi látist af völdum veirunnar. Þetta eru fimm prósentum færri smit og tólf prósent færri dauðsföll en vikuna áður.
Matshidiso Moet, svæðisstjóri WHO í Afríku, segir að smitum fari fækkandi eftir að heimsálfan hafi komist yfir það „sem virtist vera toppurinn“.
Zweli Mkhize, heilbrigðisráðherra Suður-Afríku, segir að taka verði þessum fréttum með ró og ekki hrósa sigri of snemma en Suður-Afríka er það Afríkuríki sem hefur farið verst út úr faraldrinum.
„Mesta áhyggjuefni okkar er hvort þetta hafi verið fyrsta bylgjan og hvort ný sé í uppsiglingu,“
sagði hann og vísaði til þróunarinnar á Spáni að undanförnu.