fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Pressan

Vildi ekki nota andlitsgrímu – 100.000 í sekt

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 25. ágúst 2020 07:30

Mynd úr safni. Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardaginn tóku nýjar sóttvarnarreglur gildi í Danmörku en þær skylda farþega í almenningssamgöngum til að nota andlitsgrímur. Greinilega eru ekki allir sáttir við þetta því kona ein á Sjálandi vildi ekki nota andlitsgrímu þegar hún ferðaðist með járnbrautarlest.

Starfsfólk járnbrautanna óskaði eftir aðstoð lögreglunnar á lestarstöðina í Næstved á sunnudaginn þegar konan neitaði að yfirgefa lestina en henni hafði verið gert að yfirgefa hana þar sem hún vildi ekki nota andlitsgrímu.

Sektin við slíku er 2.500 danskar krónur eða sem nemur um 55.000 íslenskum krónum. En konan, sem er 47 ára Kaupmannahafnarbúi, var allt annað en samstarfsfús og neitaði að gefa upp nafn og aðrar persónuupplýsingar og var því handtekin og flutt á lögreglustöð. Það bættust því 2.000 danskar krónur við sektina sem varð því 4.500 krónur þegar upp var staðið en það svarar til um 100.000 íslenskra króna.

Svipað mál kom upp fyrr um daginn á Fjóni þar sem karlmaður neitaði að nota andlitsgrímu í lest til Svendborg. Hann ruglaði bara þegar lögreglumenn ræddu við hann og var því handtekinn. Mál hans fékk sömu afgreiðslu og mál konunnar, það er að segja 4.500 danskar krónur í sekt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fangaverðir ákærðir í óhugnanlegu máli

Fangaverðir ákærðir í óhugnanlegu máli
Pressan
Í gær

Elon Musk sveiflaði keðjusög og lét Zelensky heyra það – Sjáðu myndbandið

Elon Musk sveiflaði keðjusög og lét Zelensky heyra það – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afhjúpar 13 stærstu lygar Donald Trump síðan hann tók við sem forseti Bandaríkjanna

Afhjúpar 13 stærstu lygar Donald Trump síðan hann tók við sem forseti Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bað íhaldsmenn að útskýra ummæli Trumps eins og fyrir barni og ekki stóð á svörum – „Nei við erum ekki orðin að einveldi“

Bað íhaldsmenn að útskýra ummæli Trumps eins og fyrir barni og ekki stóð á svörum – „Nei við erum ekki orðin að einveldi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Basl Markle heldur áfram – Úthugsuð markaðsbrella eða bara vandræðagangur og vanþekking?

Basl Markle heldur áfram – Úthugsuð markaðsbrella eða bara vandræðagangur og vanþekking?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kennari setti netið á hliðina með eitraðri pillu sem hann sendi öfgahægri-miðli – „Nei vinur, andspyrnan er raunveruleg“

Kennari setti netið á hliðina með eitraðri pillu sem hann sendi öfgahægri-miðli – „Nei vinur, andspyrnan er raunveruleg“