Það var Adones Betances, 22 ára, en þeir þekktust. Betances er bróðir 14 ára stúlku sem var unnusta Oritz. New York Post skýrir frá þessu. Blaðið segir að Betances hafi verið ósáttur við aldursmuninn á parinu en það sleit sambandinu daginn sem Ortiz var myrtur. Í kjölfarið féllst Ortiz á að hitta Betances.
Þeir hittust á fimmtu hæð byggingar sem er nærri heimilum beggja. Betances kom þangað 10 mínútum á undan Ortiz.
En hvað gerðist frá því að Ortiz kom og þar til nágrannarnir heyrðu skyndileg öskur og urðu elds varir er ekki vitað. Þegar lögreglan kom á vettvang lá Ortiz með alvarlega áverka og illa brunninn. Hann náði þó að segja nafn Betances áður en hann lést. Hann hafði verið stunginn tvisvar í bakið og einu sinni í bringuna. Því næst var bensíni hellt yfir hann og eldur borinn að honum. 90% líkamans brunnu.
Betances hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og getur ekki losnað gegn greiðslu tryggingar. Hann á allt að 25 ára fangelsi yfir höfði sér ef hann verður fundinn sekur um morðið.