Við komuna á sjúkrahúsið var Trump með andlitsgrímu og stoppaði í um 45 mínútur hjá bróður sínum. Því næst hélt hann til Bedminster í New Jersey þar sem hann hélt fréttamannafund.
Ekki hefur verið skýrt frá dánarorsökinni en bandarískir fjölmiðlar segja að Robert hafi verið alvarlega veikur um hríð. Hann var tveimur árum yngri en forsetinn. Hann var kaupsýslumaður og tók þátt í rekstri fasteignaveldis fjölskyldunnar.
„Það er með þungu hjarta að ég skýri frá því að bróðir minn, Robert, lést í kvöld. Hann var ekki bara bróðir minn, hann var besti vinur minn. Hans verður sárt saknað en við hittumst aftur. Minning hans mun lifa í hjarta mínu að eilífu. Robert ég elska þig. Hvíldu í friði.“
Segir í yfirlýsingu forsetans. Þess er vænst að hann muni mæta í útför Robert þrátt fyrir að hann sé með stífa dagskrá alla daga.
Robert Trump var þekktur fyrir að vera Donald Trump mjög trúr og tryggur. Í júlí hafði hann betur fyrir dómi í máli gegn bróðurdóttur þeirra, Mary Trump, og fékk lögbann sett á útgáfu bókar Mary um forsetann og fjölskylduna en óhætt er að segja að þar séu ekki fagrar lýsingar á forsetanum og fleiri fjölskyldumeðlimum. Áfrýjunardómstóll hnekkti lögbanninu síðan og var bókin því gefin út.