Um miðjan júlí uppgötvuðu lögreglumenn holu sem var að myndast á landamærunum við Mexíkó og hélt jarðvegurinn sífellt áfram að síga. Þann 27. júlí var því byrjað að bora niður við þess holu og skömmu síðar bar borunin árangur.
Þegar komið var átta metra niður í holuna var myndavél látin síga niður og sýndi hún hvað leyndist þarna niðri en það voru göng.
„Þetta virðast vera fullkomnustu göngin sem fundist hafa til þessa og örugglega þau fullkomnustu sem ég hef séð á ferlinum.“
Sagði Carl E Landrum, yfirmaður landamæralögreglunnar í Yuma.
Göngin fundust í eyðimörkinni utan við Yuma í Arizona. Þau ná yfir til Mexíkó og eru rúmlega 400 metrar að lengd. Þau eru þrír metrar á breidd og 1,2 metrar á hæð. Í þeim er loftræsting, vatnsleiðslur, rafleiðslur og lestarteinar. Mikil vinna hafði verið lögð í gerð ganganna til að koma í veg fyrir að þau myndu hrynja saman.