Þessu reyndu vísindamenn nýlega að svara. Hópur, undir stjórn Yitzchak Ben Mocha mannfræðings við háskólann í Zürich, fór í gegnum gögn frá 4.572 manns um kynlíf. Fólkið kom frá mismunandi menningarheimum. Skýrt var frá þessu á vef phys.org.
Þau svör voru flokkuð frá sem töldust víkja frá norminu, þar má nefna svör fólks sem vinnur í klámiðnaðinum og þar sem sifjaspell komu við sögu.
Niðustaðan er að í nær öllum menningarheimum stundar fólk það sem kalla má einkakynlíf, það er kynlíf í einrúmi án áhorfenda. Það sama á við um þá sem eru á stöðum þar sem nær útilokað er að stunda kynlíf án truflunar.
Rannsóknin náði einnig til dýra. Niðurstaðan var að vísindamennirnir fundu aðeins eina dýrategund sem fer afsíðis til að makast. Það eru fuglar af tegundinni Arabian babbler. Ekki er vitað af hverju þeir fara afsíðis þegar kemur að því að makast.
Niðurstaða rannsóknarinnar er því að það eru aðeins tvær tegundir sem kjósa að makast í einrúmi, menn og Arabian babbler.
Mocha telur að ástæðan fyrir þessu hjá mönnum geti hugsanlega verið að karlar hafi á sínum tíma viljað koma í veg fyrir að aðrir karlar örvuðust við að sjá konuna af ótta við að þá myndu þeir reyna að stela henni. Kynlíf í einrúmi hafi hugsanlega þýtt að karlar gátu haft stjórn á kynlífsfélaganum en samt sem áður gátu þau bæði verið innan um annað fólk að kynlífi loknu.