New Zealand Herald skýrir frá þessu. Fram kemur að í skýrslunni vari hópur bandaríska lækna við því að hugsanlega geti verið tengsl á milli viðvarandi hiksta og kórónuveirusmits. Ástæðan fyrir þessu mati læknanna er að 62 ára maður frá Chicago var lagður inn á sjúkrahús í apríl. Hann hafði lést um rúmlega 11 kíló á fjórum mánuðum á óútskýrðan hátt og í fjóra sólarhringa fyrir innlögnina hafði hann verið með stanslausan hiksta. Hann var ekki með hita, hálsbólgu, brjóstverki, öndunarörðugleika eða önnur klassísk einkenni kórónuveirunnar.
Til að komast að orsökum hikstans ákváðu læknar að taka myndir af brjósti hans og sáu þá svolítið sem líktist gegnsæju og brotnu gleri en það getur bent til vandræða með lungnastarfsemina.
Maðurinn, sem þjáist af sykursýki, var settur í einangrun og fékk meðhöndlun við lungnabólgu og um leið var tekið sýni úr honum til að rannsaka hvort hann væri með kórónuveirunar. Svo reyndist vera.
Enn hefur ekki verið staðfest að viðvarandi hiksti sé einkenni kórónuveiru en læknarnir, sem skrifuðu skýrsluna, biðja fólk að halda vöku sinni þegar fólk með óvenjuleg einkenni, á borð við hiksta, leitar til heilbrigðiskerfisins.