Tveimur árum síðar, 1973, var Archuleta fundinn sekur um árás á lögreglumann með banvænu vopni og dæmdur í fangelsi. Honum tókst að flýja 1974. Handtökuskipun var gefin út 1977 en hann fannst aldrei. Handtökuskipunin rann úr gildi 2018.
Cinquanta hætti aldrei að rannsaka málið og hringdi ófá símtöl og barði á ófáar dyr til að reyna að hafa uppi á Archuleta. Honum barst nýlega símtal frá ónafngreindum heimildarmanni sem sagði:
„Ég hef hugsað um þetta og ég ætla að segja þér hvar maðurinn, sem skaut þig, er.“
Sagði Cinquanta í samtali við KUSA-TV.
Í framhaldinu var handtökuskipun á hendur Archuleta gefin út og fann lögreglan hann þar sem hann bjó um 30 km frá Sante Fe undir nafninu Ramon Montoya en það nafn hefur hann notað síðustu 40 ár. Hann verður nú fluttur í fangelsi í Colorado og vonast Cinquanta til að hitta hann þar.
„Ég myndi vilja setjast niður með honum og tala við hann. Hann vill kannski tala við mig eða kannski ekki. Hver veit?“