Virginia Giuffre, sem er nú 36 ára, hefur við yfirheyrslur og í sjónvarpsviðtölum margoft skýrt frá því að umrætt kvöld hafi hún dansað við Andrew á næturklúbbnum Tramp í Lundúnum. Þegar þau yfirgáfu staðinn var hún, að eigin sögn, neydd til að stunda kynlíf með prinsinum.
Í viðtali við BBC í nóvember sagði Andrew að hann hafi verið á pizzastað þetta kvöld með dóttur sinni og lagði áherslu á að hann þekki Giuffre ekki og hefði í raun aldrei hitt hana. En frásögn sjónarvottsins, sem heitir Shukri Walker, gengur þvert á framburð Andrew um þetta.
Walker sagði The Sun að hún muni vel eftir að hafa séð prinsinn í næturklúbbnum þar sem hann var í för með Epstein, Virginia Giuffre og Ghislaine Maxwell sem var unnusta Epstein og samverkamaður hans í barnaníðsmálum að því að talið er. Ástæðan fyrir að hún man þetta svo vel er að hún steig á tær prinsins á dansgólfinu og þegar hún sneri sér við til að biðjast afsökunar stóð hún augliti til augliti við hann.
„Hann brosti. Hann sagði: „Þetta er allt í lagi.““
Sagði hún í samtali við The Sun.
Frásögn hennar gengur þvert á það sem prinsinn hefur sagt og beinir kastljósinu enn frekar að honum. Hún sagði að hún hafi ákveðið að skýra frá þessu eftir að hún sá fyrrgreint viðtal BBC við Andrew. Hún hafði því samband við bandaríska lögmanninn Lisa Bloom, sem sér um mál margra fórnarlamba Epstein, og upplýsingum hennar hefur einnig verið komið til bandarísku alríkislögreglunnar FBI.
„Hann virtist skemmta sér vel. Hann var með þessari ungu konu sem var á mínum aldri, kannski aðeins yngri.“
Sagði Walker sem sagðist muna vel eftir Giuffre sem hafi verið „skrýtin á svip“.
„Ég man eftir þessari litlu stúlku sem var kannski aðeins of drukkin eða var skrýtin á svipinn. Hún brosti ekki. Það var algjör andstæða við það.“