Lögreglan fann þrjú geymsluhólf í farartækjum hinna grunuðu, en þeir voru handteknir í lögregluaðgerð sem sögð er vera ein sú stærsta sem gerð hefur verið til þess að reyna að uppræta skipulagða glæpastarfsemi í London.
Tvö geymsluhólfanna litu út fyrir að vera rafmagnskassar, sem gera má ráð fyrir að finna í öllum flutningabílum. Þriðji felustaðurinn var falinn í gólfinu aftast í bílnum og var opnaður með fjarstýringu. Lögreglan sagði að felustaðirnir hafi verið þannig úr garði gerðir að flókið hafi verið að opna þá og til þess hefði þurft sérstaka lykla.
Ekki hefur verið gefið upp hver margir voru handteknir. Fulltrúi lögreglunnar sagði að glæpamenn beiti öllum ráðum til þess að fela fíkniefni, vopn og ágóðann af glæpastarfseminni. Hann sagði einnig að lögreglan finni reglulega felustaði í farartækjum og á heimilum.
Lögreglan segir að margir þessara glæpamanna haldi að auður þeirra sé ósnertanlegur og að peningar séu aðalástæðan fyrir því að fólk leiðist út í skipulagða glæpastarfsemi. Þess vegna sé fjárhagur hinna grunuðu alltaf rannsakaður og lögreglan geri allt sem hún getur til þess að leggja hald á allt sem glæpamennirnir hafa aflað með ólöglegum hætti og sækja þá til saka.