Það voru vísindamenn við San Diego háskólann sem fóru yfir gögn frá fullorðnum Bandaríkjamönnum um kynlífsiðkun þeirra. CNN skýrir frá þessu.
Þeir greindu gögn sem sýna hversu oft fólk stundar kynlíf og hversu marga rekkjunauta það hefur átt. Unnið var úr svörum rúmlega 4.000 karlmanna og rúmlega 5.000 kvenna.
Atvinnulausir karlar, karlar í hlutastarfi eða með lágar tekjur voru líklegri til að vera óvirkir kynferðislega. Á árunum 2000 til 2002 var hlutfall karla á aldrinum 18 til 24 ára sem ekki stunduðu kynlíf 18,9%. Á árunum 2016 til 2018 var hlutfallið komið í 30,9%.
Konur á aldrinum 25 til 34 stunduðu einnig minna kynlíf segja vísindamennirnir en rannsókn þeirra var birt í síðustu viku í læknaritinu JAMA Network Open.
Vísindamennirnir segja að svo virðist sem ungt fólki seinki því eiginlega að verða fullorðið. Því stundi það minna kynlíf sem og annað sem tilheyrir lífi fullorðinna. Þar nefna þeir meðal annars til sögunnar stefnumót, sambúð og barneignir. Þetta segja þeir vera hluta af menningarlegri þróun í þá átt að seinka því að verða fullorðinn. Fólk búi lengur heima og því sé erfiðara að stunda stefnumót og kynlíf og fólk sé ekki fjárhagslega sjálfstætt.
Vísindamennirnir benda á að þetta fyrirbæri, sem þeir kalla „að fullorðnast hægt“ skýri ekki hvers vegna hafi dregið úr kynlífsiðkun eldra fólks og þeirra sem eru giftir. Þeir telja að þar komi Internetið og þeir miðlar sem eru í boði á því við sögu.
„Í einföldu máli sagt þá eru nú miklu fleiri möguleikar en áður á hvað er hægt að gera seint á kvöldin og færri tækifæri til að koma kynlífi af stað ef báðir aðilar eru uppteknir á samfélagsmiðlum, tölvuleikjum eða í hámhorfi.“
Er haft eftir talsmanni vísindamannanna.