Í könnunum var niðurstaðan að Biden er með mun meira fylgi eða 8 prósentustig að meðaltali. Í 51 könnun naut Biden meira fylgis en í tveimur mældist fylgi þeirra hið sama. Það er því á brattann að sækja fyrir Trump og virðast áherslumál hans þessar vikurnar ekki falla vel í kramið hjá kjósendum.
Nú leggur hann aðallega áherslu á lög og reglu í kosningabaráttu sinni en það hefur ekki skilað tilætluðum árangri, eiginlega þvert á móti.
Há stálgirðing í kringum Hvíta húsið á að vernda Trump fyrir reiðum mótmælendum sem hafa mótmælt drápi lögreglunnar á George Floyd og kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum. En margir íbúar höfuðborgarinnar líta frekar á girðinguna sem tákn um vaxandi pólitíska einangrun Trump og skorti hans á því að geta áttað sig á hvernig landið liggur hverju sinni.
Samflokksmenn hans eru meira að segja farnir að láta óánægju sína og andstöðu við hann í ljós. Mitt Romney, þingmaður repúblikanaflokksins, tók til dæmis þátt í mótmælum við Hvíta húsið nýlega. Hann var eini öldungardeilarþingmaður repúblikana sem greiddi atkvæði með því að sakfella skyldi Trump þegar fulltrúadeildin höfðaði mál á hendur honum til embættismissis í upphafi árs. Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður frá Alaska, sagði nýlega að hún sé ekki viss um að hún muni kjósa Trump í nóvember.
Það er kannski ekki að furða að margir samflokksmenn Trump séu farnir að hafa efasemdir um ágæti þess að styðja hann því þeir þurfa margir sjálfir að huga að endurkjöri en kosið verður um hluta þingsæta í báðum deildum þingsins samhliða forsetakosningunum. Ekki er talið útilokað að repúblikanar muni missa meirihluta sinn í öldungadeildinni en demókratar eru í meirihluta í fulltrúadeildinni.
Eins og fyrr sagði þá sýnir meðaltal 53 nýlegra skoðanakannana að Biden nýtur 8 prósentustiga forskots á Trump. Þetta virðist vera farið að segja til sín innan repúblikanaflokksins.
Líklegt má telja að veikburða og ómarkviss stefna Trump í tengslum við heimsfaraldur kórónuveiru og efnahagslegra áhrifa hennar auk mótmælanna í kjölfar drápsins á George Floyd hafi neikvæð áhrif fyrir Trump.