fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Forsetinn segir að sigrast hafi verið á heimsfaraldrinum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. júní 2020 10:45

COVID-19 veiran. Mynd:U.S. Army

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Magufuli, forseti Tansaníu, staðhæfir að sigrast hafi verið á kórónuveirufaraldrinum þar í landi. Þeir sem eru honum ekki sammála enda í fangelsi og raunverulegum smittölum er haldið leyndum. Samkvæmt opinberum tölum hafa 509 látist af völdum veirunnar en um 60 milljónir búa í landinu. Tölurnar hafa verið óbreyttar í tæpan mánuð.

En það sem forsetinn vill ekki segja landsmönnum er að yfirvöld eru einfaldlega hætt að uppfæra þær og upplýsa almenning um stöðu mála. Í maí greindust til dæmis 50 tansanískir vöruflutningabílstjórar með veiruna þegar þeir komu til Kenía.

Magufuli hefur tekið hart á öllum gagnrýnisröddum og þeir sem voga sér að gagnrýna hann og aðgerðir eða öllu heldur aðgerðaleysi stjórnvalda við heimsfaraldrinum eiga á hættu að vera handteknir og fangelsaðir. Bæði innanlands og utan óttast fólk að stjórnvöld leyni raunverulegri stöðu mála.

Það er þó ekki hægt að segja að Magufuli hafi ekki gert neitt til að reyna að sporna við útbreiðslu veirunnar. Í apríl bannaði hann til dæmis allt farþegaflug til landsins en hann hefur nú opnað fyrir það á nýjan leik og segir að allir sem ekki eru með hita séu velkomnir til Tansaníu.

Hann hefur þvertekið fyrir að láta loka veitinga- og skemmtistöðum sem og bænahúsum og kirkjum. Að hans mati eru moskur og kirkjur afgerandi hluti af því að sigrast á veirunni.

„Við lokum ekki bænahúsum því það er þar sem ekta lækning á sér stað. Kóróna er djöfullinn og getur ekki lifað í líkama Krists. Hún mun brenna samstundis.“

Er hann sagður hafa sagt en hann er með doktorsgráðu í efnafræði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga