Morðið á George Floyd er bara eitt margra mála þar sem lögreglan hefur drepið óvopnað svart fólk með óhóflegri valdbeitingu. Mikil mótmæli hafa brotist út víða um landið og í öðrum löndum hafa samstöðumótmæli farið fram.
Margir krefjast endurbóta á bandarísku lögreglunni og benda á að lögreglumenn fái allt of litla þjálfun. Það er mikill munur á henni á milli ríkjanna en 2013 var meðalþjálfunartíminn 34 vikur. Að þeim loknum taldist fólk hafa lokið námi sem lögreglumenn.
Í Minnesota, þar sem Floyd var drepinn, varir þjálfunin aðeins í 16 vikur og svo kemur starfsþjálfun þar ofan á. USA Today hefur eftir John Peters Jr., forstöðumanni Institute for the Prevention and Management of In-Custody Deaths, að í flestum bandarískum lögregluskólum fái nemendurnir um 40 klukkustunda þjálfun í valdbeitingu.
Engar opinberar tölur eru til um fjölda þeirra sem bandarískir lögreglumenn hafa banað en samkvæmt gagnabankanum Fatal Encounters hafa 28.139 fallið fyrir hendi lögreglumanna frá aldamótum. Svart fólk og fólk frá Latnesku-Ameríku er áberandi í tölfræðinni, hlutfallslega miklu fleira en ætti að vera miðað við samsetningu þjóðfélagsins.