fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Pressan

WHO spáir að bóluefni gegn kórónuveirunni verði tilbúið á árinu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 2. júní 2020 08:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO telur að bóluefni gegn kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, verði tilbúið fyrir áramót. Mikill fjöldi vísindamanna hefur unnið dag og nótt við þróa bóluefni gegn veirunni og vinnur WHO nú út frá því að bóluefni verði tilbúið fyrir áramót.

Ann Lindstrand, yfirmaður bóluefnaáætlunar WHO, sagði í samtali við Sænska ríkissjónvarpið að nú sé verið að vinna við 100 hugsanleg bóluefni og að tilraunir séu nú þegar hafnar á fólki með tíu þeirra.

„Þróunin er mjög hröð. Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt.“

Sagði hún og bætti við að WHO vinni út frá því að virkt bóluefni verði tilbúið fyrir áramót.

Tilraunir með nokkur bóluefni lofa góðu en enn á eftir að prófa þau í stærri tilraunum. Lindstrand sagði að því væru enn margir óvissuþættir og margar tilraunir þurfi að fara fram áður en bóluefni verði tilbúin til fjöldaframleiðslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 6 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin