Sögur herma að bölvun hvíli á þorpinu og dæmi eru nefnd um hræðileg örlög og ógæfu þeirra sem hafa gerst svo djarfir að leggja leið sína þangað.
Þetta á rætur að rekja til fimmta áratugar síðustu aldar þegar Biagio Virgilio, sveitarstjóri, er sagður hafa sagt á sveitarstjórnarfundi „megi þessi ljósakróna detta niður ef ég er ekki að segja satt“. Sekúndum síðar datt risastór ljósakrónan niður. Allt frá þessu hafa þorpsbúar trúað að Virgilio hafi kallað bölvun yfir þorpið þeirra.
Síðan hafa þorpsbúar trúað þessu og margar óútskýrðar hörmungar hafa riðið yfir þorpið. Þorpsbúar eru sagðir óttast þessa bölvun og vilja alls ekki segja nafn þess og tala aðeins um það sem „nafnlausa þorpið“.
Sögur um þessa meintu bölvun hafa borist víða og samkvæmt frétt Mirror þá segir einn þorpsbúi að þetta hafi gengið svo langt að fólk hafi fært sig frá honum á veitingastað í nágrannasveitarfélagi þegar það áttaði sig á að hann var frá Colobraro.
Nafn þorpsins er einnig sagt eiga sér hræðilegan uppruna en það er dregið af orðinu „coluber“ sem þýðir snákar. Sumir þorpsbúar segja þorpið vera heimili „lllskunnar“.
Sögur herma að margt undarlegt hafi gerst í þorpinu, hlutir sem ekki er hægt að útskýra. Sögur eru sagðar af börnum sem fæddust með tvö hjörtu eða þrjú lungu. Undarleg skriðuföll og bílslys eru einnig sögð eiga sér stað í þorpinu. En það er þó bót í máli fyrir þorpsbúa að hin meinta bölvun er aðeins sögð leggjast á gestkomandi í þorpinu.