VG segir að Hagen hafi verið handtekinn í morgunsárið og hafi lögreglan verið með mikinn viðbúnað á vettvangi. Ekki kemur fram hvort hann hefur stöðu grunaðs en lögreglan hefur boðað til fréttamannafundar klukkan hálf ellefu að norskum tíma.
Norska ríkisútvarpið ræddi við Tommy Brøske, sem stýrir rannsókninni, en hann vildi ekki tjá sig um málið fyrir fréttamannafundinn.
Lögreglan hefur rannsakað dularfullt hvarf Anne-Elisabeth en hún hvarf nánast sporlaust frá heimili sínu í október 2018. Rannsóknin fór mjög leynt til að byrja með og var ekki skýrt frá málinu fyrr en í janúar 2019.
Í upphafi var málið rannsakað sem mannrán því miðar með kröfu um lausnargjald voru skildir eftir á vettvangi. Rannsóknin fór síðan yfir í að vera morðrannsókn í janúar á þessu ári.
Norskir fjölmiðlar segja að lögreglan sé með mikinn viðbúnað við heimili Tom Hagen þessa stundin og verið sé að rannsaka húsið hátt og lágt. Hann er einn af auðugustu mönnum Noregs.