Menn þurfa ekki að leita langt yfir skammt þegar kemur að bestu viðskiptadílunum á Íslandi. Kjarninn bendir á að Páll Ágúst Ólafsson, fulltrúi hinna bandarísku kaupenda eigna slitabús WOW, deili skrifstofuhúsnæði með sjálfum Sveini Andra Sveinssyni, slitabússtjóra WOW. Þessi mikla nánd hlýtur að teljast afar heppileg, þar sem hægt var að handsala hundruð milljóna króna viðskipti á kaffistofunni á Grjótagötunni, án þess að flækja málið með leiðinda fundum úti í bæ.
Fulltrúar WAB flugfélagsins áttu því kannski aldrei mikla möguleika þegar þeir föluðust eftir sömu eignum og fengu þvert nei. Það er ekki vitað þar sem tilboðin hafa ekki verið gerð opinber.
Það má aldrei gera lítið úr ástum samlyndra hjóna.