Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn á vettvangi en hann er grunaður um að hafa ráðist á konuna. Lögreglan segir að ekki sé að sjá að fólkið hafi þekkst eða tengst á nokkurn hátt. Svo virðist sem tilviljun hafi ráðið því að ráðist var á þessa konu.
Lögreglan rannsakar nú hvort innbrotstilraun, fyrr um daginn, tengist málinu en þar var exi notuð. Hinn handtekni hefur áður komið við sögu lögreglunnar vegna ýmissa mála, þar á meðal margra ofbeldisbrota. Hann hefur hlotið um 40 dóma í gegnum árin.