fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Pressan

Mikill lyfjaskortur í Noregi

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 19. febrúar 2019 05:58

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aldrei hefur verið meiri skortur á lyfjum í Noregi en nú er. Ástandið var slæmt á síðasta ári og hefur farið versnandi á þessu ári. Í mörgum apótekum er ekki hægt að fá nauðsynleg lyf. Margir sjúklingar fara því fýluferðir í apótekin og reyna að hamstra lyf þegar þau eru fáanleg.

Lyfjastofnun segir stöðuna vera alvarlega. Unnið er að því hörðum höndum að bæta stöðuna en Steinar Madsen, hjá lyfjastofnuninni, sagði í samtali við VG að því miður væri hann svartsýnn og hætt sé við að vandinn sé kominn til að vera.

Eins og staðan er núna vantar um 200 tegundir lyfja í Noregi samkvæmt tölum lyfjastofnunarinnar. Í sumum tilfellum er þó hægt að fá önnur lyf, samheitalyf, sem gera sama gagn.

Madsen segir að aðalástæðan fyrir þessum lyfjaskorti sé að stór lyfjafyrirtæki selji framleiðsluréttin, á lyfjum sem þau hafa ekki lengur áhuga á, til minni fyrirtækja sem bjóði ekki upp á sama afhendingaröryggi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fangaverðir ákærðir í óhugnanlegu máli

Fangaverðir ákærðir í óhugnanlegu máli
Pressan
Í gær

Elon Musk sveiflaði keðjusög og lét Zelensky heyra það – Sjáðu myndbandið

Elon Musk sveiflaði keðjusög og lét Zelensky heyra það – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afhjúpar 13 stærstu lygar Donald Trump síðan hann tók við sem forseti Bandaríkjanna

Afhjúpar 13 stærstu lygar Donald Trump síðan hann tók við sem forseti Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bað íhaldsmenn að útskýra ummæli Trumps eins og fyrir barni og ekki stóð á svörum – „Nei við erum ekki orðin að einveldi“

Bað íhaldsmenn að útskýra ummæli Trumps eins og fyrir barni og ekki stóð á svörum – „Nei við erum ekki orðin að einveldi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Basl Markle heldur áfram – Úthugsuð markaðsbrella eða bara vandræðagangur og vanþekking?

Basl Markle heldur áfram – Úthugsuð markaðsbrella eða bara vandræðagangur og vanþekking?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kennari setti netið á hliðina með eitraðri pillu sem hann sendi öfgahægri-miðli – „Nei vinur, andspyrnan er raunveruleg“

Kennari setti netið á hliðina með eitraðri pillu sem hann sendi öfgahægri-miðli – „Nei vinur, andspyrnan er raunveruleg“