Þann 20. desember mun loftsteinninn 216258 2006 WH1 fara framhjá okkur í um 6 milljón kílómetra fjarlægð. Hann er talinn vera um 600 metrar í þvermál og myndi geta gjöreytt stórborg ef svo illa færi að hann kæmi inn í gufuhvolfið okkar. Þrátt fyrir að 6 milljónir kílómetra virðist gríðarleg fjarlægð þá er það ekki mikil fjarlægð á stjarnfræðilegan mælikvarða.
Á annan dag jóla mun loftsteinninn 310442 (2000 CH59) þjóta framhjá okkur, á um 40.000 km/klst, í um 7 milljón kílómetra fjarlægð. Hann er svipaður af stærð og sá fyrrnefndi og mun valda miklu tjóni ef hann lendir í árekstri við heimkynni okkar dag einn í framtíðinni.