fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Pressan

„Við sjáum för inn í snjóflóðið en engin út“ – Leita fjögurra göngumanna

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 3. janúar 2019 06:45

Það varð mjög kalt. Mynd:Flickr

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjögurra göngumanna er saknað eftir að þeir fóru í göngu á Blåbærtinden í Tamokdalen í Troms í Noregi síðdegis í gær. Stórt snjóflóð féll á svæðinu í gær og er óttast að fólkið, ein kona og þrír karlar, hafi lent í því. Snjóflóðahættan var svo mikil í gær að ekki þótti óhætt að senda leitarfólk inn á svæðið. Staðan verður metin á nýjan leik nú í morgunsárið.

Leitað var úr lofti í gær á meðan hægt var en leit lá alveg niðri í nótt. Norska ríkisútvarpið hefur eftir talsmanni lögreglunnar í Troms að fylgst verði með veðri og leit hafin um leið og óhætt þykir.

„Við sjáum för inn í snjóflóðið en engin út.“

Sagði talsmaðurinn um stóra snjóflóðið. Flóðið er um 300 metra breitt og 600-700 metra langt. Talsmaðurinn sagði að óttast væri að fólkið hefði lent í flóðinu, það hefði átt að vera búið að skila sér úr gönguferðinni fyrir löngu síðan.

Blåbærtinden er vinsælt fjall meðal skíðamanna og fjallgöngumanna. Það var fimm manna hópur sem lagði á fjallið í gær, sænskur karl og sænsk kona auk þriggja Finna. Leiðir þeirra skildust. Sænski karlmaðurinn skilaði sér en hin ekki. Hann tilkynnti um hvarf félaga sinna um klukkan 16 en þá hafði hann ekki séð til þeirra í um tvær klukkustundir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Neglur urðu morðingja Unu að falli

Neglur urðu morðingja Unu að falli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kramdi fiðrildi og sprautaði sig – Mátti þola kvalafullan dauðdaga á sjö dögum

Kramdi fiðrildi og sprautaði sig – Mátti þola kvalafullan dauðdaga á sjö dögum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti