fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Pressan

Heimsþekkt klámstjarna fyrir nokkrum árum: Býr í holræsum Las Vegas í dag

Ritstjórn Pressunnar
Miðvikudaginn 21. ágúst 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki eru mjög mörg ár síðan Jenni Lee var ein skærasta stjarnan í klámiðnaðinum í Bandaríkjunum. Óhætt er að segja að aðstæður hennar hafi breyst á síðustu árum því í dag býr hún í holræsum Las Vegas.

Fjölmiðlar víða um heim hafa fjallað um málið, en það voru kvikmyndatökumenn sem unnu að gerð heimildarmyndar um þann fjölda fólks sem býr í holræsum borgarinnar sem komu auga á Jenni.

Jenni Lee er 39 ára gömul en fyrir rúmum áratug kom hún fram í ýmsum myndum auk þess að sitja fyrir í tímaritum á borð við Hustler og Penthouse. Hún sagði skilið við klámmyndaferilinn árið 2009 til að einblína á öllu hefðbundnari fyrirsætustörf.

Jenni, sem heitir réttu nafni Stephanie Sadorra, sagði við kvikmyndatökumennina að hún hefði það ágætt, þrátt fyrir allt saman. „Þetta er ekki eins erfitt og fólk kann að halda, hér eru allir mjög tillitsamir og almennilegir. Ég er hamingjusöm, hér hef ég allt sem ég þarf,“ segir hún. Ekkert rennandi vatn er í holræsunum og ekkert rafmagn sem getur vissulega verið ókostur.

Á myndum sem vefmiðillinn Mirror birtir má sjá hvernig er umhorfs í holræsunum. Fólk sem þar býr reynir að hafa hlutina heimilislega; búið er að koma fyrir kojum, stólum og jafnvel sófum og þá má sjá myndir hanga á veggjum. Jenni býr ásamt nokkrum fjölda fólks í holræsi sem átti að vernda íbúa borgarinnar fyrir mögulegum skyndiflóðum.

Eins og að framan greinir hefur myndast lítið samfélag undir borginni. Þar búa einstaklingar sem hafa lent í vandræðum á húsnæðismarkaði; misst heimili sitt eða hreinlega ekki haft efni á að greiða fyrir leigu í borginni. Sumir þessara einstaklinga eru í fullri vinnu en kjósa að búa neðanjarðar.

Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að Jenni ákvað að flytja í göngin en hún ætlar ekki að flýta sér að flytja út. Hún kveðst hafa eignast marga góða vini þar og segir einkennandi hvað allir eru góðir við hver annan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Obama snýr bakinu við Biden

Obama snýr bakinu við Biden
Pressan
Fyrir 5 dögum

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm

Kveikti óvart á búkmyndavélinni í miðjum klíðum – Missti starfið og á yfir höfði sér dóm
Pressan
Fyrir 1 viku

Ung stjarna var ekki öll þar sem hún var séð

Ung stjarna var ekki öll þar sem hún var séð
Pressan
Fyrir 1 viku

Hver myrti Sherri? – Hvar var DNA-sýnið?

Hver myrti Sherri? – Hvar var DNA-sýnið?
Pressan
Fyrir 1 viku

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 1 viku

Juno myndaði hrauntjarnir á Io

Juno myndaði hrauntjarnir á Io