fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Dularfullt hvarf prinsessunnar

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 28. apríl 2019 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Lalla Salma tók sér stöðu í sviðsljósinu í október 2002 sem eiginkona Mohameds VI. Marokkókonungs nötraði allt og skalf hjá hinni íhaldssömu konungshirð. Salma, sem var þá 23 ára, var með mikið rautt hár og var svo allt öðruvísi en fyrri prinsessur. Hún gat allt eins verið frá annarri plánetu. Hún neitaði að hylja hár sitt með höfuðklút að múslímskum sið, klæddist oft gallabuxum og leyndi oft ekki frjálslyndum skoðunum sínum. Hún fékk konunginn til að lýsa því yfir að hann myndi ekki taka sér fleiri eiginkonur, eins og honum er heimilt, hún þvertók fyrir að halda sig til hlés og braut blað í sögunni með því að verða fyrsta eiginkona þjóðhöfðingja landsins sem fékk opinberan, konunglegan titil. Auk þess varð hún fyrsta eiginkona þjóðhöfðingja landsins sem leyfði myndatökur af sér.

Orðrómur um að konungur hafi lokað hana inni

Salma er með háskólapróf í tölvunarfræði og hún stofnaði góðgerðasamtök til stuðnings krabbameinssjúklingum. Hún var gerð að góðgerðarsendiherra hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO. Sem fyrsta prinsessa landsins fékk hún einnig nokkrum sinni tækifæri til að vera fulltrúi landsins og eiginmanns síns opinberlega. Engin prinsessa hefði geta verið sýnilegri og mikilvægari en Lalla Salma.

En síðan  bar svo við að hún hvarf algjörlega úr sviðsljósinu í október 2017. Þetta hefur vakið upp margar spurningar enda mikil breyting frá því sem áður var. Eftir 16 ára hjónaband hvarf hún skyndilega úr sviðsljósinu. Síðasta opinbera verk hennar var að sækja viðburð á Yves Saint-Laurent-safninu í Marrakesh. Innlendir fjölmiðlar dirfast ekki að tala um dularfulla fjarveru hennar en það drepur ekki orðróminn sem svífur yfir bæjum og borgum. Margir Marokkómenn spyrja sig hvað hafi orðið af Lalla Salma. Getur verið að hún og konungurinn séu skilin og hún berjist nú fyrir umgengnisrétti við börnin þeirra tvö, krónprinsinn Moulay Hassan,  sem er 15 ára, og prinsessuna Lalla Khadija, sem er 12 ára? Er hún flutt til Grikklands? Bandaríkjanna? Getur það virkilega staðist að hún hafi nýlega sést á Ítalíu með börnunum sínum? Þá hefur sá orðrómur gengið fjöllum hærra að konungurinn hafi lokað hana inni í einni af tólf höllum sínum. Í nýútkominni bók er því haldið fram að hann hafi beitt þessari sömu aðferð á móður sína, Lalla Latifa, þegar hún neitað að slíta ástarsambandi við einn af lífvörðum föður hans. Lalla Latifa fékk þó síðar leyfi til að flytja til Parísar og búa þar í útlegð.

Æpandi þögn

Mohamed VI. er einn af síðustu konungum heimsins sem fer með einhver völd en hann er mjög valdamikill og hefur síðasta orðið í nær öllum málum landsins. Hann ferðast mikið, er oft í París, og er óspar á að sýna lúxuslíf sitt á samfélagsmiðlum. Hann er sagður stýra skuggaríkisstjórn, sem samanstendur af vinum og sérfræðingum, og er hún sögð valdameiri en hin opinbera ríkisstjórn.

Á síðasta ári gekkst konungurinn undir hjartaaðgerð í Frakklandi. Þá kom fjarvera drottningarinnar berlega í ljós því á myndum, sem hirðin sendi frá sér, af konungnum á sjúkrabeði sást Lalla Salma hvergi, en aftur á móti voru börnin hans og fjögur systkin með honum á myndunum.

Ekki þótti það síður undarlegt fyrir skömmu þegar spænsku konungshjónin og skömmu síðar Harry Bretaprins og Meghan prinsessa komu í opinbera heimsókn til Marokkó að það voru konungurinn og börn hans sem tóku á móti þeim. Lalla Salma sást hvergi. Þetta stakk mjög í stúf því Lalla Salma og spænsku drottningunni er vel til vina.

Spænska slúðurblaðið Hola! segir að hjónin séu skilin og að Lalla Salma búi enn í Marokkó. Þögn konungsfjölskyldunnar þykir þó æpandi. The Times segir að skilnaðarorðrómurinn sé þó styrktur af grein í litlum vefmiðli í Marokkó nýlega, en þar sagði að Lalla Salma hefði „svikult viðhorf“ og „uppblásið egó“. Skrif sem þessi eru tímamótaskrif í Marokkó og ekki væri hægt að birta slík skrif án leyfis konungsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga