Þegar kom að brúðkaupsferðinni á síðasta ári leitaði hann upplýsinga hjá áströlskum yfirvöldum um hvort honum væri óhætt að fara til Taílands og fékk þau svör að það væri óhætt. Þessi 25 ára knattspyrnumaður og eiginkona hans fóru því til Taílands í góðri trú.
En eins og fyrr segir þá var hann handtekinn þar að beiðni yfirvalda í Bahrain. Þarlend yfirvöld kröfðust framsals hans en eftir mikinn þrýsting frá áströlskum stjórnvöldum og mörgum knattspyrnumönnum var honum sleppt og hann gat snúið aftur til Ástralíu.
Þetta var að vonum mikill léttir fyrir hann og nú hefur lífið tekið góða stefnu á nýjan leik. Ekki skemmir fyrir að í gær varð hann ástralskur ríkisborgari en hann hafði staðist prófið, sem er lagt fyrir umsækjendur, með glans en hann svaraði öllum spurningunum rétt.
Hakeem er hálfatvinnumaður með Pascoe Vale í Melbourne. Hann vonast nú til að geta einbeitt sér að knattspyrnu og gert hana að fullu starfi. Síðan blundar í honum draumur um að geta leikið fyrir ástralska landsliðið.