James Safechuck, einn þeirra manna sem saka poppgoðið látna Michael Jackson, um kynferðisbrot í heimildarmyndinni Leaving Neverland, segir að Jackson hafi sett á svið hjónavígslu mill þeirra. James var hrifinn af skartgripum í æsku og færði Jackson honum skartgripi í skiptum fyrir kynferðislega greiða.
Um hina svokölluðu hjónavígslu segir James:
„Við gerðum þetta í svefnherberginu hans og fórum með hjúskaparheit, líkt og við yrðum bundnir saman böndum að eilífu. Það er erfitt að hugsa aftur til þessa augnabliks.“
Heimildarmyndin Leaving Neverland verður sýnd í tveimur hlutum á RÚV í næstu viku. Sjá nánar á vef RÚV.