Í umfjöllun CNN kemur fram að minnst þrettán einstaklingar sem allir eru nátengdir Brown hafi farið fram á nýja krufningu á líki hans. Brown fór til tannlæknis þann 23. desember 2006. Brown var veiklulegur og ráðlagði tannlæknirinn hans að hann myndi fara til læknis sem hann og gerði. Tveimur dögum síðar var hann látinn og var opinber dánarorsök sögð lungnabólga og loks hjartaáfall.
Marvin Crawford, læknir sem meðhöndlaði Brown, segir við CNN að það hafi komið honum á óvart hversu hratt honum hrakaði. „Ég spurði hvað hefði eiginlega farið úrskeiðis,“ segir hann.
Andre White, vinur Brown, er sagður hafa haft svo miklar áhyggjur af því að eitthvað gruggut væri á seyði að hann tók með sér blóðsýni úr Brown áður en hann lést. Yamma, dóttir Brown, er einnig sögð hafa hafnað því að krufning færi fram á á líkinu og þá hefur systir hennar, Deanna Brown Thomas, ekki viljað segja hvar jarðneskar leifar hans eru geymdar. Yamma hefur ekki viljað segja hvers vegna hún vildi ekki að krufning færi fram, aðeins að „hún hefði sínar persónulegu ástæður“ eins og það var orðað.
Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað aðstandendur Brown hafa fyrir sér í þessum efnum. Getgátur hafa verið uppi um að skömmu áður en hann lést hafi Brown viljað skipta um lögmann og endurskoðanda sem báðir höfðu fjárhagslega hagsmuni af því að vinna fyrir Brown. Lögmaðurinn, Buddy Dallas, og endurskoðandinn, David Cannon, hafa ekki tjáð sig um málið en Cannon lést í október síðastliðnum. Hann er sagður hafa haft fjármuni af Brown meðan hann starfaði fyrir hann og átti hann yfir höfði sér kæru vegna þess.
Umboðsmaður hans, Charles Bobbit, var einn í herberginu með Brown þegar sá síðarnefndi lést en Charles lést árið 2017, 87 ára að aldri. Bobbit sagði síðar að Brown hefði sagt við hann: „Ég fer í kvöld.“ Svo dró hann andann djúpt þrisvar áður en hann sofnaði og dó.“ Hafa margir efast um að Brown hafi dáið með þeim hætti sem Bobbit lýsti.
LaRhonda Pettit, dóttir Brown, og tengdasonur hans, Darren Lumar, voru þeirrar skoðunar að Brown hafi verið myrtur. LaRhonda og Darren eru nú bæði látin en Darren var myrtur ári eftir að hann viðraði þessa skoðun sína. Morðið á honum er óupplýst.
Rannsókn CNN hefur einnig leitt í ljós að vinir þriðju eiginkonu Brown, Adrienne Brown, telji að hún hafi einnig verið drepin. Adrienne lést árið 1996 eftir að hafa gengist undir lýtaaðgerð. Rannsóknarlögreglumaður sem CNN ræddi við segir að vísbendingar séu um að henni hafi verið gefinn banvænn lyfjaskammtur, vísvitandi. Óvíst er á þessari stundu hvort lögregla rannsaki málið frekar en líkurnar á því hafa ekki minnkað eftir umfjöllun CNN.