fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Pressan

Skýr skilaboð frá NASA – „Þessu myndum við aldrei halda leyndu“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 18. janúar 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hefur þú hugleitt hvort og þá hvenær heimsendir verður? Það hafa margir gert í gegnum tíðina og sumir hafa miklar áhyggjur af þessu enda ýmislegt sem getur gert út af við okkur. Þar má nefna loftsteina og svo stafar okkur kannski einna mest hætta af sjálfum okkur enda eigum við nægilega mikið af vopnum til að tortíma okkur mörgum sinnum.

Oft er vísað til bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hvað varðar hættuna á að loftsteinar skelli á jörðinni með hörmulegum afleiðingum enda enginn sem fylgist betur með geimnum en NASA. Það eru yfirleitt einhverjar samsæriskenningar á flugi um yfirvofandi heimsendi og leynimakk NASA, stjórnvalda og fleiri um eitt og annað.

En myndi NASA halda því leyndu ef stór loftsteinn er með stefnu á jörðina með tilheyrandi hörmungum þegar hann lendir í árekstri við þessi heimkynni okkar? Nei segir Michelle Thaller, fjölmiðlafulltrúi NASA, eftir því sem Sunday Express segir. Í viðtali  segir hún að ef þessi staða kemur upp verði vísindamenn NASA alveg jafn áhyggjufullir og aðrir.

„Ef ég vissi að heimsendir sé yfirvofandi, heldur þú þá að ég myndi sitja við skrifborðið mitt?“

Spyr hún og bætir við:

„Ef þú sérð alla starfsmenn NASA kaupa gott vín og eyða öllum peningunum sínum, það er dagurinn til að hafa áhyggjur.“

Segir hún og bætir við að ekki væri hægt að halda því leyndu ef heimsendir væri yfirvofandi.

„Næsti“ heimsendir að mati samsæriskenningasmiða er í febrúar en þá mun loftsteinninn 2002 NT7 þjóta framhjá jörðinni. Samsæriskenningasmiðir telja að hann verði þá í aðeins 10.000 km fjarlægð en NASA segir að fjarlægðin verði öllu meiri eða 61 milljón kílómetra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Neglur urðu morðingja Unu að falli

Neglur urðu morðingja Unu að falli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kramdi fiðrildi og sprautaði sig – Mátti þola kvalafullan dauðdaga á sjö dögum

Kramdi fiðrildi og sprautaði sig – Mátti þola kvalafullan dauðdaga á sjö dögum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti