Þetta kemur fram í Fagbladet 3F. Eitt sinn var ráðist þrisvar sinnum á lærlinginn á einum degi og í öll skiptin ýtti yfirmaður hans kústskafti eða líkum hlut upp í endaþarm hans. Eitt sinn réðst einn mannanna á lærlinginn og hélt honum föstum á meðan yfirmaður þeirra klippti gat á buxur lærlingsins og stakk blýanti upp í endaþarm hans. Það hafði engin áhrif á mennina að lærlingurinn öskraði og bað þá að hætta.
Saksóknari segir að hér sé um grófar líkamsárásir að ræða og kynferðislegt ofbeldi. Allt að sex ára fangelsi liggur við brotum af þessu tagi.
Yfirmaðurinn og einn fjórmenninganna eru einnig ákærðir fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart unga manninum, ekki þó samfarir að því er fram kemur. Ákært er fyrir brot gegn hinni svokölluðu nauðgunargrein hegningarlaganna en við broti á þeirri grein liggur allt að átta ára fangelsi.
Hinir tveir iðnaðarmennirnir eru ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í einu ofbeldisverki en það var tekið upp á myndband. Þeir eru báðir útlendingar og krefst saksóknari að þeim verði gerð refsing og vísað úr landi.
Á fyrrgreindri upptöku sést þegar lærlingnum er haldið föstum af samstarfsmanni sem situr ofan á honum. Fætur hans eru bundnir saman með reipi sem er síðan losað og sett um háls hans í skamma stund. Því næst eru fætur hans aðskildir og kústskafti þrýst af miklu afli upp í endaþarm hans. Lærlingurinn öskrar og reynir að skríða á brott en á upptökunni sjást fjórmenningarnir hlæja hátt að þessu.