Staða Lilju Alfreðsdóttur varaformanns Framsóknarflokksins er umtalsvert veikari eftir sveitarstjórnarkosningarnar.
Bakland hennar í Reykjavík náði ekki inn manni í borgarstjórn þrátt fyrir töluverða auglýsingaherferð og áberandi baráttu og því eru mögur ár framundan fyrir harðan kjarna stuðningsfólks hennar.
Lilja náði að tryggja sér þingsæti í kosningunum fyrir ári með snjallri baráttu þar sem auglýst var um land allt að hún væri í baráttusæti. Var þannig gert út á jöfnunarsætin með góðum árangri.
Eftir kosningarnar nú er ljóst að kjarnafylgi Framsóknar í sjálfri höfuðborginni er nær að engu orðið. Vigdís Hauksdóttir hefur eflaust haft þar sitt að segja, en þekkt er að margir gamlir og gegnir framsóknarmenn studdu hana að þessu sinni fremur en flugstjórann geðþekka Ingvar Mar Jónsson.