Aðalbygging CNN í New York var rýmd um klukkan 22.30 í gærkvöldi að staðartíma, klukkan 3.30 að íslenskum tíma. Sprengjuhótun hafði borist og því voru höfuðstöðvarnar rýmdar. CNN Tonight var í beinni útsendingu þegar þetta gerðist og varð að stöðva útsendinguna.
Lögreglan hefur nú lokað stóru svæði við Time Warner Center, þar sem CNN er til húsa, af. Rýma þurfti bygginguna í október eftir að sprengja var send þangað.