Þetta átti að vera grín en það endaði á að kosta hana vinnuna. Kona ein í Michigan í Bandaríkjunum ákvað að hrekkja vinnufélaga sína all hressilega á dögunum þegar verið var að kveðja samstarfsmann hennar, 47 ára konu.
Konurnar unnu báðar hjá fyrirtæki sem heitir MMI Engineered Solutions og fékk konan sem átti að kveðja veður af því að samstarfskona hennar ætlaði að koma með bollakökur í kveðjupartýið. Það sem var öllu verra var að sögunni fylgdi að konan ætlaði að setja hægðalosandi mixtúru í kökurnar.
Þegar þetta spurðist út var ákveðið að hringja á lögregluna sem mætti á svæðið um það leyti sem konan kom með kökurnar í vinnuna. Konunni var tjáð að lögreglan myndi leggja hald á kökurnar þar sem grunur léki á að þær væru heilsuspillandi. Rannsókn fór fram og leiddi hún í ljós að búið var að bæta mixtúrunni við kökurnar.
Konan játaði við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa komið mixtúrunni fyrir í kökunum. Hún hefði ekki haft neitt slæmt í huga heldur ætlað að framkvæma vinnustaðagrín. Hún viðurkenndi síðar að hugmyndin hefði verið slæm – sem hún vissulega var.
Konan verður ekki ákærð vegna málsins, meðal annars í ljósi þess að lögreglan lagði hald á kökurnar áður en þær voru borðaðar. Konunni var þó sagt upp störfum.