Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað orkublöndu vegna aðskotahlutar sem fannst í pakkaðri vöru.
Orkublandan er blanda af jarðhnetum, rúsínum, kasjúhnetum og möndlum í hýði og er seld í Krónunni.
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni hjá Nathan & Olsen í Klettagörðum 19.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Krónan
Vöruheiti: Orkublanda – blanda af jarðhnetum, rúsínum, kasjúhnetum og möndlum í hýði.
Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 29.09.2023
Strikamerki: 5690595095663
Framleiðandi: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
Framleiðsluland: Ísland