Ein umtalaðasta og mest sótta kvikmynd í kvíkmyndahúsum hérlendis og þótt víðar væri leitað er stórmyndin The Odyssey. Sitt sýnist hverjum um myndina en sjónvarpsmaðurinn og Grikklandsvinurinn Egill Helgason lýsir yfir mikilli ánægju með þau áhrif sem The Oddyssey hefur haft. Þar á meðal nefnir hann aukinn áhuga á hinum forna kveðskap sem myndin byggir á og í athugasemd við pistil Egils kemur fram að sá áhugi hafi náð til ungs fólks.
Eins og kunnugt er byggir The Odyssey, sem hinn heimsþekkti kvikmyndagerðarmaður Christopher Nolan leikstýrir og skrifar handritið að, á hinni ævafornu Ódysseifskviðu eftir gríska skáldið Hómer. Myndin hefur hlotið gagnrýni fyrir að víkja um of frá verki Hómers og þar á meðal frá Emily Wilson, prófessor í klassíkum fræðum, sem þýddi Ódysseifskviðu úr forngrísku yfir á ensku. Nolan sótti við skrifin á handritinu töluvert í þýðingu Wilson sem segir kvikmyndina hörmulega og skorta mjög þá dýpt sem einkenni verk Hómers.
Meðal þeirra sem hafa ákveðið að fara eftir slíkum gagnrýnisröddum og sjá ekki myndina er hinn þekkti gagnrýnandi Jón Viðar Jónsson.
Áhuginn á Hómer
Egill Helgason vill hins vegar meina að hvað sem mönnum finnist um gæði The Odyssey þá sé ekki annað hægt en að fagna því hversu umtöluð myndin sé og þeim aukna áhuga á kveðskap Hómers sem hún hafi ýtt undir. Egill skrifar á Facebook:
„Skoðun mín á Ódysseifsmynd Nolans er einföld. Það er stórkostlegt að heimsbyggðin sé að tala um Ódysseif (og Hómer). Að ógleymdum þeim fjölda sem mun lesa verkið. Það er stórkostlegt að svona margt fólk skuli fara í bíó. Og það er stórkostlegt að kvikmyndin sé að langmestu leyti gerð án tölvubrella - að maður nefni ekki gervigreind. Um efnistökin má svo deila fram og til baka en þetta er harla gott.“
Vignir Rafn Valþórsson leikari og leikstjóri greinir frá því í athugasemd við pistil Egils að hann hafi sjálfur orðið var við þetta:
„Ég stend sumarvaktina í fornbókabúðinni Bókin á Hverfisgötu. Það hafa komið þrír ungir menn að spyrja um Hómer síðustu daga. Sáu myndina og vildu lesa bókina.“