Hér sameinast eitthvað það besta og vinsælasta á veisluborðum, brauðtertan og ostasalatið og útkoman er stórkostleg. Það er um að gera að nota þá osta sem ykkur þykja bestir, en í þessari uppskrift fær Dala Camembert að njóta sín ásamt kryddostum. Það er líka gaman að bera þessa tertu fram fyrir grænmetisætur þar sem hún inniheldur ekkert kjöt eða fisk eins og algengt er með brauðtertur.
Uppskrift er frá Gott í matinn, höfundur Helena Gunnarsdóttir.
Innihald
Einn skammtur
- 2 stk. – rúllutertubrauð eða 1 hefðbundið brauðtertubrauð
- 2 stk. – Dala Camembert
- 1 stk. – hvítlauksostur frá MS
- 1 stk. – piparostur frá MS
- 1 stk. – græn paprika
- 1 stk. – stór rauðlaukur
- 20-30 – rauð eða græn vínber
- góð handfylli fersk steinselja
- 3 dósir – sýrður rjómi 18%
- 2 dl – majónes
- Spírur, graslaukur, rauðlaukur, tómatar og steinselja til skrauts
Skref 1
- Látið brauðtertubrauðið þiðna við stofuhita á meðan þið gerið salatið.
- Skerið ostana, grænmetið og vínberið í mjög smáa bita, saxið steinseljuna.
- Blandið þessu öllu saman við 2 dósir af sýrðum rjóma og 1 dl majones (geymið eina dós af sýrðan rjóma og 1 dl majónes til að smyrja utan á tertuna).
Skref 2
- Ef þið viljið gera hringlaga brauðtertu eru skornir fjórir jafnir hringir úr rúllutertu-brauðinu. Ég nota botn á tertuformi til viðmiðunar.
- Leggið brauðið á disk og smyrjið ostasalatinu jafnt á þannig að þið fáið þrjár hæðir af salatinu.
- Leggið að lokum brauð efst.
Skref 3
- Hrærið saman 1 dl af majónesi við eina dós af sýrðum rjóma og smyrjið vel yfir tertuna og niður allar hliðar.
- Tertan geymist vel í ísskáp í sólarhring.
- Skreytið tertuna að vild og berið fram.