fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Matur

Domino’s býður upp á nakta pizzu

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 25. júní 2024 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónsmessunótt er ein fjögurra nátta á Íslandi þar sem undur geta gerst samkvæmt þjóðtrúnni, selir kasta hömum sínum, dýr tala mannamál, náttúrusteinar fljóta upp úr jörðinni og auðveldara verður að finna óskasteina, lífssteina, hulinshjálma, auk þess sem ýmsar náttúrulækningajurtir öðlast aukinn kraft.

En fátt er talið jafn heilsueflandi á Jónsmessunni og morgundöggin, sem öðlast lækningarmátt um nóttina samkvæmt þjóðtrúnni. Því er til siðs að fara út eldsnemma morguns, kasta af sér klæðum og velta sér nakin upp úr dögginni. Þannig getur fólk læknast af meinum og haldið veikindum í skefjum í heilt ár á eftir. Domino’s fagnar þessari séríslensku hefð með því að taka allt af og bjóða upp á Nakta pizzu eins og segir í tilkynningu.

,,Hugmyndin kviknaði þegar því var velt upp hvernig hægt væri að auglýsa grunninn að góðri pizzu. Þetta var í fyrstu bara grín, að bjóða upp á pizzu með engu, svo fólk gæti prófað botninn okkar en eftir því sem við hugsuðum þetta meira þá fannst okkur skemmtilegra að tengja það við þessa nótt og þjóðtrúna,“ segir Ásmundur Atlason, markaðsstjóri Domino’s.

„Þannig að við ákváðum að klæða pizzuna úr og um leið minna á að það er alltaf það sem er undir sem er mikilvægast. Það á við um fólk og pizzur. Álegg er bara smekksatriði en pizzubotninn, það skiptir öllu máli að hann sé alltaf fyrsta flokks. Hann er grunnurinn að góðri pizzu alveg sama hvað fólk ákveður að setja á hana,“ segir Ásmundur.


Nakta pizzan er aðeins í boði í kringum Jónsmessu og eru landsmenn hvattir til að taka hana með sér þegar þeir fara og velta sér upp úr dögginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
29.08.2024

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins
Matur
03.08.2024

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?