Hér er á ferðinni matarmikil súpa sem vakti mikla lukku hjá heimamönnum enda dásamlega bragðgóð og bæði einföld og fljótleg í gerð.
Hráefni
- 5 hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk Olía
- 1 l Tómatsafi
- 2 stk Kjúklingakraftur
- 400 g Tómatsteningar
- 250 ml Rjómi
- 20 g Basilíka
- 60 g Smjör
- 250 g Osta tortellini
- 250 ml Vatn
Leiðbeiningar
- Steikið hvítlaukinn upp úr olíunni þar til hvítlaukurinn hefur brúnast lítillega en passið að hann brenni ekki.
- Blandið kjúklingakrafti og vatni.
- Blandið tómatsafa, kjúklingakrafti og tómötunum saman við. Hitið að suðu og leyfið þessu að malla í 15-20 mínútur.
- Bætið þá basilíku og tortellini saman við og sjóðið í 5-8 mínútur.
- Bætið smjöri og rjóma hægt úti og hrærið stöðugt yfir lágum hita þar til súpan er orðin heit en látið hana alls ekki sjóða.
- Setjið súpuna í skálar, rífið parmesan yfir og berið fram með góðu salati og/eða brauði.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.