Þetta dásamlega flatbrauð slær alltaf í gegn og er alls ekki of flókið.
Hráefni
Deig
- 3.1 g Þurrger
- 280 g Hveiti
- 7.5 ml Ólífuolía
- 1 tsk Sykur
- 0.5 tsk Salt
- 180 ml Volgt vatn
Álegg
- 250 g Mozzarellaostur, sneiddur
- 30 g Sólþurrkaðir tómatar, saxaðir gróflega
- 40 g Svartar ólífur
- 180 g Salatostur
- 5 g Basilíka
- 1 tsk Oregano
- 1 msk Steinselja, söxuð
- 1 egg
- 1 msk Vatn
Leiðbeiningar
- Blandið fingurvolgu vatni og geri saman í skál. Hrærið varlega í 5 sek og látið standa þar til gerblandan er farin að freyða (ca. 5 mín).
- Blandið 250 g af hveiti, salti og sykri saman í skál.
- Látið ólífuolíu saman við gerblönduna og hrærið í nokkar mínútur. Hellið saman við hveitiblönduna og blandið gróflega saman við sleif.
- Látið deigið á hveitistráð borð og hnoðið vel saman í um 5 mínútur. Setjið þá í skál og rakan klút yfir. Látið hefast í um 30 mínútur.
- Hnoðið deigið lítillega og skiptið í tvo hluta og fletjið út.
- Léttþeytið eggið og penslið endana á deiginu.
- Dreyfið mozzarella yfir botnana.
- Látið því næst sólþurrkuðu tómata, svartar ólífur og að lokum fetaost yfir allt.
- Kryddið með basilíku og oregano.
- Bakið í 210°c heitum ofni í 10-15 mínútur.
- Stráið steinselju yfir og njótið vel.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.