Aðdáendur Múmínálfa Tove Jansson geta byrjað fyrr á vorhreingerningunni en ella og búið til pláss í hillum og skápum fyrir nýjar gersemar í safnið. Þann 7. mars koma út tveir nýir bollar, annar með mynd af Múmínpabba og hinn með mynd af Hemúlnum, einnig koma út tvær skálar og tveir diskar í stíl við bollana. Um er að ræða varanlega línu.
Línan byggir eins og áður á myndum og bókum Tove Jansson um Múmínálfana.