Veglegur sælkeradagur verður haldinn í dag, laugardag, 24. september frá kl. 12.00 – 16.00 í versluninni Epal Skeifunni þar sem kynntar verða allskyns ljúffengar sælkeravörur og fá gestir meðal annars að smakka gómsætt handgert sælgæti, grískar matvörur og gæða ólífuolíur, súkkulaði, lakkrís, karamellur og konfekt, gæða kaffi og óáfenga drykki og svo margt fleira sem kitlar bragðlaukana.
Hér er á ferðinni viðburður sem enginn sælkeri ætti að láta framhjá sér fara enda eru hér á ferðinni kræsingar frá vörumerkjunum Sjöstrand, Sparkling Tea Copenhagen frá Tefélaginu, Sigma ekta grískt, Lakrids by Bülow, Lentz Copenhagen, Wally & Whiz, The Mallows, Add Wise og Hattesens Konfektfabrik sem öll eiga það sameiginlegt að gefa bragðlaukunum spennandi smakk.
Gaman er að geta þess einnig verður 10-20 % afsláttur verður á öllum sælkeravörum í dag verslun Epal Skeifunni og í vefverslun.