Risa götubitahátíð verður í gangi alla helgina í Hljómskálagarðinum í Reykjavík og mikið verður um dýrindis sælkera götubita sem gleðja bragðlaukana og stemningin eftir því.
Hér er um að ræða stærstu Götubitahátíð á Íslandi og eins og áður sagði verður hún haldin í Hljómskálagarðinum núna um helgina, 16. – 17. júlí, þar sem bestu matarvagnar landsins, yfir 20 matartrukkar og sölubásar, hoppukastalar, vatnaboltar, klessuboltar, trampólín leiktæki og keppnin um „Besta Götubita Íslands 2022“ í samstarfi við European Street Food Awards fer fram.
Keppt verður í hinum ýmsu flokkum en sigurvegari keppninnar hér heima mun svo keppa fyrir Íslands hönd á stærstu götubitahátíð í heimi, European Street Food Awards sem verður haldin i Munich í Þýskalandi í Haust. Dómnefnd í keppninni er ekki að verri endanum en hana skipa reyndustu veitingamenn og fjölmiðlafólk landsins: Óli Óla, Eyþór Már, Fanney Dóra, Dóri Dna, Binni Löve, og Berglind Festival. Þau munu skera úr um hver verður besti götubit Íslands 2022, besti grænmetis rétturinn og besti smábitinn. Það fer svo í hlut gesta að velja Götubita Fólksins 2022, en um það verður kosið rafrænt – hægt verður að finna tengil á hann á laugardaginn í gegnum Facebook síðu Götubitans. Það verður spennandi að fylgjast með hver hlýtur viðurkenninguna og matarvefur DV.is sem mun fylgjast vel með.
Opnunarími er hátíðarinnar:
Lau: 13.00 – 19.00
Sun: 13.00 – 17.00
Fjölbreytnin verður mikil og þessir söluaðilar verða á svæðinu:
Sillikokkur.is
The Gastro Truck
Íslenska Flatbakan
BumbuBorgarar
Vöffluvagninn
Dons Donuts
Fish and Chips Wagon
Fish & Chips Vagninn
Chikin
Just Wingin it – Vængjavagninn
Víkinga Pylsur / Viking Hot Dog
TASTY – RVK
GRILL of Thrones Iceland
Tacoson
Arctic Pies
Mijita ehf
KEBAB Vagninn
CoffeeBike Reykjavik
Yellow Mood
Coke Lime Vagninn
Vodafone Vagninn – Vodafone IS
Búbblur
Bjórbíllinn