Samtals tólf sprotafyrirtæki hlautu nýsköpunarstyrk Uppsprettunnar til að vinna að nýsköpunarverkefnum í matvælaiðnaði.
Uppsprettan, sem er nýsköpunarsjóður Haga, er ætlaður er til stuðnings við frumkvöðla til þróunar og nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á að verkefnin, sem hljóta styrkveitingu, taki tillit til sjálfbærni og styðji innlenda framleiðslu.
Alls bárust tugir umsókna um styrk í sjóðinn. Matsnefnd valdi 12 verkefni til styrkveitingar, að heildarverðmæti 16 milljón króna. Styrkirnir voru kynntir á sérstökum viðburði á lokadegi Nýsköpunarvikunnar.
„Það er mikill kraftur í íslenskri nýsköpun í matvælaiðnaði og viljum við hjá Högum leggja okkar af mörkum við að virkja þennan kraft og auka innlenda framleiðslu. Nýsköpunarsjóðurinn Uppsprettan er liður í því og er nafn sjóðsins táknrænt fyrir hlutverk hans. Að styðja við góðar hugmyndir, vökva þær til vaxtar og tryggja það að sprotinn geti vaxið og dafnað til framtíðar,” segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.
Hér má sjá yfirlit yfir þau sprotafyrirtæki sem hlutu nýsköpunarstyrkinn í ár:
Hops er ný gerð áfengislausra drykkja sem framleiddir verða á Íslandi. Drykkirnir eru bruggaðir eftir nýstárlegum aðferðum sem þróuð hefur verið með Álfi Brugghúsi. Hops er án aukaefna, sykurlaus og áfengislaus.
Smjer er allt sem þú þarft í einu smjörstykki til þess að gera dýrindis sósu á örskammri stundu. Fyrsta vara Smjer er bearnaise og ættu allir landsmenn að geta eldað ljúffenga bearnaise með steikinni í sumar.
Baða framleiðir íslenskar sápur úr íslenskum hráefnum. Baða hefur fengið styrk til framleiðslu og þróunar á þremur nýjum vörum sem að nota íslensk hráefni sem að hafa græðandi og róandi áhrif.
Svepparíkið vinnur að þróun og ræktun á sælkeramatsveppum úr lífrænum úrgangi frá matvælaiðnaði. Sjálfbær ræktun sælkerasveppa er ný á Íslandi.
Sifmar er sprotafyrirtæki sem að vinnur að framleiðslu á hollum íslenskum barnamat. Hugmyndafræði fyrirtækisins er að nýta íslenskt grænmeti og ávexti sem annars færu til spillis og vinna það áfram með íslenskum orku- og vatnsauðlindum.
Úr sveitinni er sprotafyrirtæki sem að vinnur að ræktun á gulrætum í öllum regnbogans litum. Litríkar gulrætur gera meðlætið og nestið skemmtilegra.
Máltíð á mettíma er vörulína frostþurrkaðra rétta. Fyrsti rétturinn sem kemur á markað er Kjöt í karrý.
Bökum saman er fjölskyldufyrirtæki sem að auðveldar fjölskyldum að skapa saman gæðastundir við bakstur. Bökum saman hefur fengið styrk fyrir þróun á þremur nýjum vörum frá fyrirtækinu.