Á köldum vetrardegi er ekkert betra en hægeldaður pottréttur sem bráðnar í munni í góðum félagsskap með fjölskyldunni. Gaman er að prófa ný hráefni og fara nýjar leiðir. Hér er á ferðinni ómótstæðilega ljúffengur Uxahalapottréttur sem enginn stenst. Pottrétturinn er hægeldaður og hann verður betri því meiri tíma sem honum er gefinn.
Uxahalapottréttur
Fyrir 6
1,5 kg Uxahali – bitar með beini
1-2 dl hveiti
½ tsk. túrmerik
1 tsk. arabísk kryddblanda – mixed
½ tsk. kóríander
¼ tsk. svört sítróna – krydd
Byrjið á því að setja hveitið í skál og blandið kryddunum saman við. Veldið síðan uxahala kjötbitunum upp úr hveitinu og raðið þeim á ofnplötu klædda bökunarpappír. Hitið ofninn í 220°C hita með grillstillingu og grillið bitana í um það bil 30 mínútur eða þangað til þeir brúnast. Á meðan uxahalabitarnir brúnast er best að byrja á sósunni.
Uxahalasósan
2 stk. stilkar sellerí, skorið í litla bita
3-4 stk. gulrætur, skornar í litla bita
1 stk. rautt chilli, saxað
3-4 stk. hvítlauksgeirar, saxaðir
2 stk .rauðlaukur, saxaðir
1 msk. arabísk kryddblanda – mixed
½ tsk svört sítróna – krydd – líka hægt að setja heila ofan í og stinga gat á hana áður.
1 tsk. kóríander
3 dósir saxaðir tómatar
3 dl nautasoð (hægt að búa til nautasoð með því að taka 3 -4 bita af uxahalanum og sjóða niður sér).
1 glas hvítvín að eigin vali
salt eftir smekk
2 msk. ólífuolía
Byrjið á því að setja ólífuolíu í pott og hita. Næst er grænmetinu og kryddinu bætt út í og þau svituð (ekki brúnuð) í ólífuolíunni í um það bil 5 mínútur. Bætið næst við hvítvíninu í pottinn og leyfið suðunni að koma upp. Síðan þegar kjötið er orðið brúnað í ofninum er því komið fyrir ofan á grænmetinu og að lokum tómötum og soðinu hellt yfir. Leyfið þessu að malla á vægum hita í eina til tvær klukkustundir. Því lengur því betri verður pottrétturinn og kjötið verður dúnmjúkt.
Fullkomið meðlæti með þessum uxahalapottrétt sem minnir á eðal franska pottrétt er heimalöguð ekta kartöflumús. Einnig er gott að vera með sæta kartöflumús. Fyrir þá sem vilja smá grænt með er upplagt bera fram ferskt og gott salat með til hliðar. Síðan er bara að njóta við kertaljós í góðum félagsskap.